fbpx

Leðurlúffur, herra

Leðurlúffur, stærð III, úr afturnýttum leðurjökkum, oftast keyptum af Rauða krossi Íslands. Fóðrið er uppnýtt kasmírpeysa, einnig frá RKÍ. Leðrið í þessu pari er einstaklega mjúkt.

23.900 kr.

Uppselt

Lýsing

Guðrún Borghildur hannar lúffur og notar í þær nær eingöngu endurunnið leður. Efniviðinn kaupir hún að mestu leyti hjá Rauða Krossi Íslands, en hún kaupir bara þær flíkur sem er ekki hægt að selja í verslunum félagsins. Þær eru rifnar, blettóttar, götóttar, eða að einhverju leyti ekki í nógu góðu ástandi til að kaupandinn vilji eignast þær. Einnig hefur hún verið svo lánsöm að vinir og vandamenn gauki að henni flíkum sem þeir vilji að eignist framhaldslíf.

Guðrún Borghildur fóðrar lúffur sínar með endurnýttum kasmírpeysum til að gera þær sérstaklega mjúkar að innan. Í lófanum er alltaf rúskinn, til að það sé öruggara að keyra með þær – þannig renna hendurnar síður á stýri bílsins. Teygja er um úlnliðinn svo lúffurnar sitji betur.

Lúffurnar koma í samtals átta stærðum. Það eru fjórar kvennastærðir sem skreyttar eru með pels. Og fjórar herrastærðir, sem venjulega eru ekki skreyttar, en má svo sannarlega bæta honum við sé þess óskað.

Fara á með lúffurnar eins og hvert annað leður. Það má spreyja á þær með leðurvörn, sé þess óskað. En mælt er samt með að vera ekki með þær úti í mikilli bleytu.

Sjá má myndir á heimasíðu Guðrúnar Borghildar www.gudrunborghildur.is

Upplýsingar um stærð

Þyngd .4 kg
Stærð 25 × 15 × 3 cm

Höfundur:

Aðrar Vörur

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.