Lýsing
Lúffur Guðrúnar Borghildar eru hannaðar úr leðurjökkum sem hafa átt sér fyrra líf. Engar tvær eru eins. Hafðu samband til að athuga hvaða litir og stærðir eru til.
Guðrún Borghildur hannar lúffur og notar í þær nær eingöngu endurunnið leður. Efniviðinn kaupir hún að mestu leyti hjá Rauða Krossi Íslands, en hún kaupir bara þær flíkur sem er ekki hægt að selja í verslunum félagsins. Einnig hefur hún verið svo lánsöm að vinir og vandamenn gauki að henni flíkum sem þeir vilji að eignist framhaldslíf.
Sjá útskýringarmynd fyrir stærðir í boði.
Þær eru fóðraðar með kasmípeysum sem gerir þær bæði mjúkar og hlýjar. Rússkinn í lófunum kemur í veg fyrir að maður renni á stýrinu.
Kolefnissporið er lágt því það er bara notað hráefni sem folk hefur af einhverjum ástæðum losað sig við. Flest er keypt hjá Rauða krossi Íslands, sumt er ættað frá vinum og vandamönnum.
Fara á með lúffurnar eins og hvert annað leður, má spreyja með vantnsvörn. En mælt með að nota þær ekki í mikillri rigningu.
Sjá má myndir á heimasíðu Guðrúnar Borghildar www.gudrunborghildur.is