Lýsing
Fjölhæf silkislæða sem má vefja einusinni eða tvisvar. Hún er saumuð í hring svo hún losni ekki og detti í gólfið.
Litirnir eru valdir saman þannig að eftir því hvernig henni er snúið, má endalaust koma með nýja útfærslu.
Slæðan er sett saman úr afturnýttum flíkum úr Rauða krossi Íslands. Bryddingin er afturnýtt silkibindi.
Slæðuna má einnig nota sem höfuðfat.