
Ásta Kristín Knight Þorsteinsdóttir
Ásta Kristín útskrifaðist af textílbraut Myndlistaskólans í Reykjavík 2024. Hún vinnur með textíl og textílaðferðir á fjölbreyttan hátt, einkum heillar vefnaður. Verk Ástu Kristínar eru oft lágstemmd og bera með sér ró og yfirvegun. Hún fæst gjarnan við gróður, landslag og form úr náttúrunni. Smáatriði, áferðir og nærmyndir eru fyrirferðarmikil í verkum hennar. Ásta vinnur mest með náttúruleg efni og gefur endurnýttum efnivið nýtt líf.